Nýjustu fréttir
Subway deild karla · Undanúrslit
29 apr. 2024Undanúrslit Subway deildar karla hefjast í kvöld mánudaginn 29. apríl. Annars vegar mætast (1) Valur og (4) Njarðvík og hins vegar (2) Grindavík og (3) Keflavík í undanúrslitunum í ár. Allir leikir úrslitakeppninnar verða í beinni á Stöð 2 Sport. Gengið er út frá því að allir leikir hefjist kl. 19:15, fyrir utan ef til kemur leiks þann 11. maí, en þá hefst hann kl. 16:00. Klárist undanúrslit í 3 eða 4 leikjum verður leitast við að hefja lokaúrslit fyrr en fram kemur í keppnisdagatali.MeiraSubway deild kvenna · Undanúrslit
27 apr. 2024Undanúrslit Subway deildar kvenna hefjast í kvöld laugardaginn 27. apríl nk. Annars vegar mætast (1) Keflavík og (5) Stjarnan og hins vegar (2) Grindavík og (3) Njarðvík. Allir leikir verða í beinni á Stöð 2 Sport. Klárist undanúrslit í 3 eða 4 leikjum verður leitast við að hefja lokaúrslit fyrr en fram kemur í keppnisdagatali.Meira1. deild kvenna · ÚRSLIT
26 apr. 2024Úrslit 1. deildar kvenna hefjast í kvöld föstudaginn 26. apríl þegar Aþena tekur á móti Tindastól í fyrsta leik úrslitanna, en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki, tryggir sæti sitt í úrvalsdeild á næstu leiktíð. Leiktímar leikjanna eru 19:15 nema í leik fimm, ef til kemur, sem fer fram laugardaginn 11. maí kl. 16:00.MeiraSkrifstofa KKÍ
Snorri Örn Arnaldsson
Móta- og fræðslustjóri KKÍSnorri Örn er móta- og fræðslustjóri KKÍ og sér um að leikir og mót fari fram og skipuleggur alla leikdaga og keppnishelgar ásamt ýmsu öðru tengdu viðamiklu mótahaldi KKÍ. Auk þess sér hann um þjálfaramenntun KKÍ og útbreiðslumál.
snorri@kki.is
vs: 514-4103 · s: 695-5080